The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


föstudagur, desember 08, 2006

Tímarnir breytast og mennirnir með

Ég og Bára erum oft í djúpum samræðum, hvort heldur sem er á msn eða augliti til auglitis... Oftar en ekki þegar við erum undir áhrifum sökkvum við djúpt í heimspekilegar pælingar. Man ég sterklega eftir því t.d. í sumar þegar við vorum staddar í Grundarfirði inni í tjaldi. Ég var að skríða inn í tjaldið með síðasta bjór kvöldsins og Bára hálfsofandi... en þá fannst okkur nauðsynlegt að ræða kirkjur landsins á alla mögulega vegu, og ég talaði meira að segja dálítið hátt... Fanneyju til mikillar mæðu haha! Ég veit ekki hvers vegna þetta gerist, en við Bára förum oft að ræða hluti sem fólk er vanalega ekkert að ræða við hinar og þessar kringumstæður!

En burtséð frá því, þá vorum við að ræða myndatökur áðan. Ég man eftir því að hafa fengið fancy myndavél í fermingargjöf, sem var EINUNGIS fyrir 9 árum síðan... hún var alveg það töff og nútímaleg að filman í hana var öðruvísi í laginu en í venjulegar myndavélar og tók alveg 32 myndir! Nota bene... FILMA, hver notar filmur nú til dags? Munið þið ekki eftir því þegar maður keypti bara 24 mynda filmu og lét það duga, og það var alveg rosalega mikið þegar fólk keypti 36 mynda filmu? Nú er það ekkert tiltökumál ef maður tekur 300-1.000 myndir í fríinu.

Eins með GSM símana. Nú eignaðist ég fyrsta símann minn í byrjun ársins 2000 eða í lok 1999 en fyrir þann tíma fékk ég að senda sms hjá vini mínum og fannst það voða töff þegar ég fékk send skilaboð í símann hans. Eyrún, manstu ekki þegar ég var að senda þér? Held þú hafir verið sú eina sem ég þekkti á þessum tíma sem átti GSM!

En heyrðu, áður en ég fer að hljóma eins og gömul kona að tala um orf og ljá og sláttuvélar... þá ætla ég að hætta!

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com