The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


þriðjudagur, nóvember 07, 2006

Morgungalsi?

Ég var að spá... Getur maður ekki verið með morgungalsa? Svona eins og svefngalsa? Ég er allavega að tala við vin minn á MSN at the moment, og mér finnst ég svo afskaplega hnyttin og skemmtileg! Klukkan er samt bara rúmlega níu á þriðjudagsmorgni og ég frekar illa sofin, en þrátt fyrir það tekst mér að fá "haha" eftir nær allt sem ég segi. Bíddu nú við... kannski er hann að hlæja að mér, en ekki með mér, damn you...!!!

Sko... þetta byrjaði allt í fæðingu, þá vildi ég ekki út. Ég er allt of mikið kúrudýr og þurfti því að toga mig út með klukku sem hafði þau áhrif að ég varð eins og afsprengi Conehead... því held ég að það séu engar myndir til af mér nýfæddri, þ.e.a.s. brand new... út af keiluhöfðinu! Þetta hefur fylgt mér dáldið gegnum ævina, þ.e. ekki keiluhausinn, heldur það að gera hlutina flókna og erfiða... Hins vegar, á einhvern undraverðan þátt, tekst mér í flestum tilfellum að klóra mig út úr því, með litlum skrámum! Ég held ég hafi sjaldan, eða aldrei farið "the easy way out" og ómeðvitað geri ég það kannski aldrei!


En já, það er önnur saga... hins vegar er ég ennþá í galsanum, alveg sko... living la vida loca! Ég er að spá í að segja nokkra brandara í viðbót áður en ég verð boring aftur, held það sé svona happy hour í gangi hjá mér, eins gott að nota það!


Hehe... ertu að fatta myndina? hehehe get it, happy hour ;) hahaha!
Ok, búið

P.s. já þessi mynd er úr Nesu ferðinni. Hins vegar held ég að ferðasagan rati aldrei hingað. Ég kem kannski í mesta lagi til með að lauma inn einni og einni mynd, eins og ég geri núna með þessari færslu...
Eins og Viper, Jarkko og Jukka sögðu: "What happens at a conference, stays at a conference!"

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com