The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


mánudagur, nóvember 20, 2006

Ég á ekki til eitt aukatekið orð!

Ég er sko orðlaus. Eða eiginlega ekki, hef alveg margt um þetta að segja, en maður segir bara alltaf svona! Ég var semsagt komin út kl. 08:20 í morgun, þegar ruslabíllinn er einmitt að fara af stað gegnum götuna mína. Jújú, ég tölti út að bílnum mínum, býð sorphirðumanninum góðan daginn sem er að lufsast gegnum snjóinn úti á stæði upp að ruslatunnunni okkar. Nei, ekki hafði karlskarfurinn nú fyrir því að bjóða góðan daginn á móti, heldur öskraði að mér einhverjum fúkyrðum og dónaskap fyrir það að vera ekki búin að moka frá tunnunni. Mér fannst þetta svo óviðeigandi!

Í fyrsta lagi þá var bíllinn minn ekki einu sinni fyrir utan húsið, heldur fyrir utan næsta hús, þannig að tæknilega séð hefði ég bara getað verið gestur í húsinu. Í öðru lagi, þá er það kannsi ekki alveg í forgangi sama dag og það fennir í kaf í hverfinu mínu, að fara að moka frá ruslatunnunni! Í þriðja lagi hefði hann bara getað skilið hana eftir og látið ábúendur sitja í súpunni með fulla tunnu!

Ég var voða kvenlega klædd, með leðurhanska og í ullarkápu... en hefði ég verið í strigaskóm og kuldaúlpu hefði ég sko rokið í fíflið. Ég veit það vel að maður á að moka frá ruslatunnunni heima hjá sér en góðan daginn hérna! Mér var skapi næst að hringja eitthvert og kvarta, en í staðinn ætla ég bara að vorkenna honum fyrir að vera svona mikill fæðingarhálfviti.

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com