The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


mánudagur, október 02, 2006

"Meira í dag en í gær..."

Baðvigtin á mínu heimili hefur sjálfstæða hugsun. Í gær ákvað hún að létta mig um einhverja tugi kílóa... svei mér þá! Ég ákvað nú SAMT að þetta væri ekki satt nema þá það að þyngdaraflið hafi brenglast allt í einu. Ekki það að ég hafi haft eitthvað á móti þessari tölu sem blasti við mér. Talandi um að grennast í svefni ?!?! Hún hafði þó áttað sig í morgun þegar ég steig á hana. Þetta er ekki alveg í fyrsta skipti sem hún tekur upp á þessu, þannig að ég hef ályktað að valkvíði hrjái greinilega fleiri en mannfólkið!

En að öðru...
Skólinn gengur svona og svona... ég er ekki dugleg að vakna á morgnana, enda gjörsamlega óþolandi stofa sem við erum í á þessum ókristilega tíma. Svona miniature bíósæti með oggulitlum glerborðum fyrir framan. Svo ef einhver vill komast inn fyrir mann þarf maður án gríns að taka allt dótið sitt saman og standa upp með allt í fanginu. Nei takk, frekar sef ég aðeins lengur og les efni tímans uppi í MBL seinna um daginn... eða bara ekki, og verð alveg úti á þekju um hvað námsefnið er - en ég næ þó nægum svefni!!!

"Útlendingaeftirlitið" gengur annars vel og er ég að íhuga að bjóða mig aftur fram sem buddy á næstu önn. Enda hefur þetta haft góða hluti í för með sér, tala meira um það seinna... þegar það er 100% víst ;)

Mig langar svona í lokin að óska Tullu innilega til hamingju með afmælið 29.september, þar sem mér tókst að gleyma því en hafði montað mig af því daginn áður að þetta væri einn af fáum afmælisdögum sem ég myndi alltaf eftir því ég kynni sko kennitöluna hennar utan að síðan hérna í den þegar ég fékk að nota gamalt debetkort frá henni til að komast inn á staði niðri í bæ þegar ég var ekki orðin tvítug. Klöppum fyrir Tullu!

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com