The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


laugardagur, september 16, 2006

Jeg ringer på fredag....

Jæja, ég og Jana skutluðum okkur í bátaferð VD í gær, ofsafjör... og ofsagaman! Ég var reyndar örlítið sein í því og fór á öðru hundraðinu úr Grafarvoginum niður á höfn rétt fyrir sex... það er svona að lenda í helvítis umferðaröngþveiti hérna á Vesturlandsveginum á leiðinni heim, sveitt eftir spriklið í Baðhúsinu (eða reyndar svitinn farinn að storkna eftir setu í bíl í HÁLFTÍMA...oj!) - dísús - EN JÆJA, nóg um það!

Jana átti línu kvöldsins þar sem hún leit tælandi augnaráði á gítarleikara kvöldsins og sagði: "Ef gítarinn þinn bilar geturðu komið og spilað á mig" - Ég held að gaurinn hafi samt ekki fattað að þetta væri grín fyrr en ég, Inga Lára, Jóhanna og Maggi vorum öll þarna í kring hlæjandi...

Ferðin heppnaðist vel þó það hafi verið frekar fámennt! Viðskiptadeild, hvað er að ske?!?
Þar sem ég var bílandi, fengum við þær upplýsingar hjá Fireplace-Bear að eftirpartýið væri í Breiðfirðingabúð og taldi ég mig sko vita hvar hún væri, heldur betur! Það endaði ekki betur en það að ég misreiknaði mig aðeins og enduðum við í Skaftfellingabúð. Jæja, við fundum svo Breiðfirðingabúð eftir smá rúnt og spjall við 118 - en það var víst ekki rétt BÚÐ! - En eftir nokkur símtöl (þ.á.m. aftur ágætis spjall við 118) og eftir að hafa hitt skemmtilegasta starfsmann í lúgu sem bauð alla "HJARTANLEGA" velkomna, komumst við á réttan stað... Húnvetningabúð! Það partý var nú eiginlega dautt svo við flúðum í miðbæinn en fórum svo bara snemma heim, enda prúðar ungar konur *hóst*

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com