The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


mánudagur, september 04, 2006

Dagar víns og rósa

Jæja, komin tími til að halda áfram með þetta blogg...

Albufeira, Alvarve - Portúgal:

Frábær ferð!
Við litum sjaldan á klukkuna, sváfum þegar við vorum syfjaðar og borðuðum þegar við vorum svangar... mikið hangið í sundlauginni og á bakkanum (jafnvel um miðjar nætur), 35-40°stiga hiti á daginn, góður matur á kvöldin og mikið áfengi í kjölfarið... sundlaugarteiti, live tónleikar á hverju kvöldi á Matt's Bar, 2 umferðir í Algarve Shopping o.fl. o.fl. ;)
Við vorum orðnar frekar góðar í því seinustu dagana í ferðinni að forðast "Pablo from yesterday", gæja sem var alltaf að kynna hinn og þennan pöbb á kvöldin og dró okkur fram og til baka til að fá frítt skot og 2 fyrir 1...
Við gerðum nú ekki margt crazy enda fórum við fyrst og fremst til að slappa af! Ég hitti þó einn Breta sem langaði óskaplega að kynnast mér nánar... eða "get in my pantyhose" - en ég bauðst bara frekar til að lána honum þær ef hann langaði svona í þær! Tinna eignaðist svo aðdáanda sem var þjónn á veitingastaðnum sem við borðuðum á síðasta kvöldið sem sönglaði "You and me..." þegar hann labbaði framhjá borðinu okkar og allt þar fram eftir götunum hehe!

Hérna koma nokkrar myndir frá ferðinni, kannski set ég fleiri inn seinna... eða læt þetta bara duga, kemur í ljós!



Í réttri röð að ofan:

1 - Við fyrsta daginn, skrunuðum niður á strönd en ætluðum varla að rata til baka!
2 - TOTTA Bank... hahaha segir sig sjálft
3 - Áhugaverðasti sjálfsali á klósetti á skemmtistað sem ég hef séð
4 - Það var mikið drukkið af ofskreyttum kokkteilum
5 - Hittum trúða sem bjuggu til þessa blöðru fyrir okkur... ehemm!
6 - Hehe, þessi miði var bara fyndinn... dans aulanna ;) hoho
7 - Sundlaugin á hótelinu, lítil en gerði alveg sitt gagn!
8 - Við eftir langan dag hjá og í sundlauginni, bikinífar ha?!?
9 - Ég að tjekka á typpinu á þessum indjána í einhverri souvenir búð - frekar spes!
10 - Steve-Gary-Andrew(hehe vissum fyrst ekki alveg hvað hann hét) - gaurinn sem á barinn á hótelinu
11 - Nick, lítið krúttlegt hundgrey sem hélt til á hótelinu okkar
12 - Steve-Gary-Andrew manaði okkur til að hoppa út í sundlaug eina nóttina þegar við komum heim úr bænum, alveg mest hressandi!!!
13 - Síðasta kvöldið okkar fórum við að borða niðri í gamla bæ, þar voru þessir indjánar að spila "Panpipes play Abba" allt kvöldið!
14 - Ég og poppmaðurinn ógurlegi
15 - Sólin að koma upp daginn sem við fórum heim, ég vaknaði kl. 7 og gat ekki sofið út af hitanum

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com