The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


miðvikudagur, júlí 12, 2006

Place your ad here

Í framhaldi af commentum á síðustu færslu hjá mér hef ég ákveðið að vekja upp umræðu um auglýsingar í íslensku sjónvarpi.

Númer eitt:

Íslendingar hafa tendence til að talsetja erlendar auglýsingar... jújú aðrar þjóðir gera það og kannski ekkert skrýtið við það þannig séð. Hins vegar skil ég ekki Renault Megané auglýsinguna... you know, þessi með alla rassana... AF HVERJU talar maðurinn, sem talar inn á auglýsinguna, með frönskum hreim?!? Mér líður án gríns illa að horfa á þessa auglýsingu út af því. Jú ok, ég veit að það eru ekki allir sem geta lesið texta sem er settur á erlent sjónvarpsefni en ómæ, af hverju að tala íslensku með frönskum hreim bara því auglýsingin er frönsk?!

Númer tvö:

Helvítis Húsasmiðjuauglýsingin þar sem dökkhærð lítil kona gerir allt sjálf því það er svo auðvelt... og allir svo hjálpsamir í Húsasmiðjunni. Vei vei... öll dýrin í skóginum eru vinir!

Númer þrjú:

Bíddu eigum við að ræða allar ræstivöruauglýsingarnar þar sem allt gerist án þess að þurfa að hafa fyrir því...
"Lalala úps hellti niður á mig rauðvíni... en það reddast með undraefninu sem er alveg náttúrulegt og jafnvel hægt að nota sem skreytingu á köku!"(reyndar lygi en gæti verið gott punchline!)

"Nei hva er að sjá baðherbergið, ég ætla bara að taka þessa tusku hérna, brosandi út að eyrum, renna henni létt yfir allt saman og þá glansar allt eins og nýtt!" (og ég ætla by the way að líta út drop dead gorgeous á meðan!)

"Uss sjáðu fituna á veggnum bakvið eldavélina... obbosí, spreyjum með þessu undraefni sem einnig er hægt að nota sem ilmvatn einu sinni á vegginn og allt verður í lagi!" (Afsakið mig en hver er að þrífa bak við eldavélina sína svona on a daily basis?)

...Allar talsettar by the way!

Númer fjögur:

Bubbaauglýsingarnar...

Númer fimm OG sex:
Bætt við eftir comment frá Eyrúnu

Helvítis Orkuveituauglýsingin... what the fuck! HVERJUM datt í hug að þetta væri sniðugt. Mig verkjar í rófubeinið þegar ég neyðist til að horfa á þessa auglýsingu!

Númer sjö:

Íslendingar eiga samt alveg góðar auglýsingar... eins og t.d. KB banka auglýsingarnar, Heimsborgarinn, Lýður lottómaður, nýju Vís auglýsingarnar o.fl. og hlakka ég til að sjá t.d. meira af KB auglýsingunum sem eiga að koma á næstunni...


En jæja, ég ætla að halda áfram að vera kvefuð og hálflasin í vinnunni... vorkenn mí!

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com