The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


fimmtudagur, júlí 27, 2006

On a daily basis...

Ég vaknaði kl.08:00 í morgun en náði samt að fara í sturtu, klæða mig(og þá erum við að tala um að ég gleymdi ekki einu sinni að fara í brjóstahaldarann... já það hefur gerst!!!), fara í skó, setja á mig gleraugun, setja í mig eyrnalokka nota bene!, kemba hárstrýið og kippa með einni jógúrt til að sötra í vinnunni... á 7 mínútum... Í framhaldi af því lenti ég á öllum mögulegum rauðum ljósum á leiðinni í vinnuna, sem eru reyndar bara 4 en samt... tefur mig um nokkrar mínútur og fyrir mig er það slatti þar sem ég reyni ómeðvitað að mæta alltaf á mínútunni í vinnuna, mjöööög sjaldan of snemma, þó það gerist jú stundum alveg! SAMT sem áður var ég mætt í vinnuna kl. 08:17 sem er eiginlega hálfgert kraftaverk!

Ég er öll brúnflekkótt á höndunum eftir að hafa litað hárið á Tinnu í gær, útskýri það bara þannig að ég hafi heilsað svörtum manni í gær og hann hafi bráðnað yfir mig því ég er svo hot... hohoho!

Rockstar fór ekki vel í mig í gærkvöldi, ég vil bláa spandexfríkið út... takk fyrir pent! Hún fer í taugarnar á mér... svo vil ég að Píkan og Djill hrynji líka út...

Heyrðu, svo er ég byrjuð í einu námskeiði á sumarönn uppi í skóla. Það skilja mig fáir að nenna þessu en ég er búin að gera alla brjálaða í kringum mig í svona mánuð þar sem ég hef ekki talað um annað en það að hlakka til að byrja í skólanum.

Ég setti inn myndir af okkur Báru frá þjóðhátíð 2005 í myndasamkeppni á ogvodafone síðunni og viti menn... við höldum okkur í topp 4 með báðar myndir... sem er alveg hryllilega skondið! Kannski, eins og Bára benti svo réttilega á, þá verðum við niðurhalanleg skjáhula fyrir fólk ef við vinnum þessa keppni? Farið inn á OGVODAFONE.IS og kjósið rétt...



Jæja krakkar, þá er ég búin að tipla á tánum yfir það helsta í fréttum í dag,
I'll be here all week... you stay classy San Diego

P.s.
Síða vikunnar er í boði Sonju sem benti mér á hana svo snilldarlega hérna í comment á síðustu færslu

---> How Do You Like Iceland? <---

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com