The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


mánudagur, júlí 31, 2006

Góð stund í Grundarfirði... taka tvö!

Ég, Bára, Sólrún, Eva María og Fanney lögðum land undir fót á föstudagskvöldið og lá leið okkar í Grundarfjörð á Góða stund, líkt og í fyrra um sama leyti! Mikið gekk á um helgina eins og búast má við þegar 5 fræknar fraukur leggjast í víking en umfram allt vorum við ljúfar og prúðar ;) Ég ætla nú ekki að lýsa helginni í smáatriðum heldur koma hérna með nokkra góða punkta og tilvitnanir frá helginni :)

Það er alltaf hægt að nota "því er ei að leyna" og "þú veist hvað ég meina" í kveðskap.

"Ó Grundarfjörður, þar sem fann ég þig Hörður... mjúkur er þinn hársvörður... "

"Við sem tjöldum í gula hverfinu.... besta hverfinu... gula hverfinu!"

"Sagði hann æðahnútar eða ermakútar? ...eða jafnvel kríuungar?"

"Ég vil nú ekki vera að troðast" <--- Algjörlega setning helgarinnar!

"Almar... Kári eða Almar Kári?"

"Ég var að prumpa!" eða "Ég þarf að prumpa" og jafnvel "Þetta var ég, ég var að prumpa!" - Allt vel notaðar setningar um helgina...

"Ég er með svo svakalegan pípara"

"Stelpur, bjórinn fer bara í dekkið!"

Skrýtin stelpa með gula derhúfu: "Er þetta fallhlíf á snúrunni?"
Rósa og Eva: "Já, við komum með einkaflugvél og hentum okkur út í fallhlíf hérna fyrir ofan"

"Það er ball á döfinni..."

Eva: "Stelpur, á ég að segja ykkur söguna á bakvið Kirkjufellið..."


Jobbarnir eru algjörlega frábært fólk!

Við sáum án efa skringilegasta leikrit allra tíma á laugardaginn... vitum ekki enn hvernig það endaði en það fjallaði um eitthvað brúðkaup! Við sáum t.d. mann labba niður vegg í kaðli, konu í bleikum prinsessukjól og gulum stígvélum hlaupa um og smúla fólk með brunaslöngu, fólk henda sér í sjóinn, svartklædda menn elta gulstígvéluðu konuna með arma á lofti... Við eiginlega gáfumst upp og fórum heim í tjald, þetta reyndi of mikið á hausinn að finna út úr þessu einhvern gáfulegan söguþráð!

Paparnir stóðu sig ágætlega á ballinu á föstudaginn, þrátt fyrir hita og svita... og svo dansaði ég af mér rassinn á Sixties balli á laugardeginum, það var nú meiri snilldin!!! Brot af bandinu ákvað svo að kíkja í tjaldpartý til okkar eftir ballið, þar sem þeir gistu hjá Jobbunum... æ, þeir eru nú ekki alveg fýsilegir drengirnir, eða ætti maður að segja mennirnir?

Frumþarfir á við að fæða sig og klæða, baða sig og fara á klósett... eru alveg sssssstórkosssssstlega vanmetnar þarfir!

Á leiðinni í Grundarfjörð voru samdir hinir ýmsu lagatextar og vísur og af einhverjum ástæðum var mikið samið um Hörð... og var samið um það að sú sem myndi næla í Hörð fengi kassa af bjór... og þrjá til viðbótar ef hann yrði klófestur inni á ferðakömrunum niðri á bryggju! ...Engin Hörður fannst þó um helgina svo hann bíður betri tíma greyskarnið!

Ferskleiki var ekki orðið yfir það þegar við vöknuðum á morgnana... fólk gjörsamlega blindaðist af geislandi fegurð okkar!

Umfram allt var helgin sssstórkossstleg og vona ég að þessi ferð verði árlegur viðburður hjá þessu ssssérlega ferðafélagi ;)

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com