The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


föstudagur, júní 09, 2006

Vitlaus... eða meira svona eins og ritlaus?

Ég hef verið ódugleg við að blogga. Hef bara ekki nennt að blogga vegna t.d. lítils áhuga fólks á blogginu... tökum sem dæmi færsluna hérna rétt fyrir neðan: "Hey... Þarf ég ekki að fara að halda partý bráðum ?"
- 1 comment... COMMON!!!

Allavega... ef líf mitt væri efnahagsreikningur væri staðan svona:

1. Ég er byrjuð í sumarvinnunni minni á skrifstofu Ístak sem er mjög fínt... komin með mastersgráðu í gluggaþvotti(long story) og farin að kunna vel við rafmagnsheftara. Andarpar hefur komið reglulega upp á síðkastið og haft mök á tjörninni fyrir utan gluggann hjá okkur og hefur það lífgað hressilega upp á daginn. Mér finnst einnig bókhald skemmtilegt, og já fojið og pojið bara... 'tis dandy indeed!

2. Það eru svona 10 manneskjur búnar að hringja í mig frá 29.maí til þess að bjóða mér vinnu... og þá síðast í dag hringdi kona frá fínu fyrirtæki hérna í bænum til þess að bjóða mér vinnu - ef ég gæti nú bara klónað mig... æ iss, ég fíla mig í ræmur hjá Ístak!

3. Ég náði ekki öllum prófunum... sem er slæmt upp á námslánin að gera... en hins vegar náði ég árinu of course, enda er ég enginn aukvisi þegar kemur að námi, mér bara tekst alltaf að láta eitt og eitt fag sitja á hakanum þangað til það er of seint að grípa í rassinn... (veit ekki hvert ég ætlaði með þessu, langaði bara að nota "seint í rassinn gripið") - Stefni ég því hér með að komast á forsetalistann á næstu önn, og jájá, gerið bara grín að mér... bíðið bara og sjáið sko!

4. Ég hef farið nokkrum sinnum í sund síðustu tvær vikur og mun það verða sumarsportið mitt. Tedda frænka gaf mér líka þessi brilliant sundgleraugu með styrkleika svo nú er ég ekki lengur eins blind og ég var áður. Þetta var orðið vandamál ef ég fór með fólki í sund, ef það labbaði frá mér eða synti... þá bara sá ég það ekki meir! Nú syndi ég eins og herforingi með fulla sjón yfir sundlaugina... en aftur á móti er ég farin að sjá hvað sundlaug er í raun ógeðslegur staður, sbr. hár, pappír(kannski klósettpappír úr rassinum á einhverjum sveittum?), sandur, skordýr o.fl. nasty í vatninu... ó boj sko!

5. Mig langar vestur í sumar, þannig að þið sem þorið út fyrir borgina í sumar, látið mig vita og við förum í roadtrip á Vestfirðina. Natural hot-tub, grill og náttúra í boði... og meira að segja er komið gsm samband á ströndina, svei mér þá!!! Og by the way, Birkihlíð rokkar... eða eins og pabbi segir: "rock solid!"

6. Þetta verður frábært sumar og hef ég á tilfinningunni að eitthvað mjög áhugavert muni gerast!

7. Og nú ætla ég að liggja og glápa á video um helgina, ekkert djamm krakkar mínir...

Nuff said

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com