The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


mánudagur, maí 15, 2006

Tímamót...

Ég fékk þá staðfestingu um daginn, nákvæmlega 9.maí, að litli bróðir minn er að verða fullorðinn. Í fyrsta lagi fór ég til dyra daginn áður og þar stóðu 2 stelpur og spurðu eftir Lárusi. Jújú ég var orðin vön þessu með Smára fyrir löngu en hélt það myndi líða langur tími þangað til Lárus færi að taka þátt í þessu stelpustandi.
Jú ok, förum aftur að 9.maí... Ég kom heim um kvöldið úr verkefnavinnu, heyrði mannamál og leit því niður í portið fyrir neðan hús því ég vissi að Lárus og vinir hans fengu leyfi til að graffa á veggina þar. Neinei, sitja ekki bara nokkrar stelpur og skríkja þarna hjá þeim. Halló... þetta er litli bróðir minn, hann á ekkert að kyssa stelpur eða hanga með þeim!!!
...en bíðið aðeins, þegar ég var í 8.-10.bekk var ég alltaf að hanga með mínum strákavinum... kannski vil ég bara halda í að hann sé "litli bróðir" forever and ever, amen! En já anyways, sjáið hvað þeir eru flinkir að graffa ?

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com