The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


miðvikudagur, maí 17, 2006

Bzz...

Gaur - lokaverkefnið í stofnun fyrirtækja er BÚIÐ!!!

Annars langaði mig að koma með smá sögu um mig og sérstakar loðnar vinkonur mínar.

Ég er haldin ofsahræðslu við býflugur, randaflugur, hunangsflugur, geitunga og fleiri lífverur sem eru minna en 10 grömm, geta flogið og bera spjót á milli rasskinnanna... en ég er þó hræddust við þær fyrrnefndu röndóttu stöllur.

Ég vaknaði hérna einn morguninn í síðustu viku við suð uppi í glugga. Jújú, allt í lagi, þær koma stundum inn en sjaldan gegnum gardínuna. Ég ákveð bara að toga sængina upp fyrir haus og liggja aðeins lengur. Heyri ég ekki bara að vinkonan er að suða kringum höfuðið á mér og GREINILEGA að reyna að komast undir sængina. Ég sturlaðist úr hræðslu, öskraði"NEI NEI NEI!!!" og stökk fram úr rúminu. Ég fór greinilega fram úr í það miklu hendingskasti að ég fékk sinadrátt í kálfann sem gerði það að verkum að ég skakklappaðist á fullri ferð að herbergishurðinni og dúndraðist á hana af miklum krafti, sem virtist vera læst af einhverjum ástæðum... Eftir þetta atvik kom ég titrandi og skjálfandi fram og bað mömmu vinsamlegast um að bjarga mér úr lífsháskanum þar sem ég var handviss um að hún væri að reyna að drepa mig, þ.e.a.s. flugan... ekki mamma.

Annars vaknaði Smári með eina í andlitinu 2 dögum eftir að ég fékk móðursýkiskastið út af minni flugu... það vöknuðu upp samsæriskenningar hérna heima um að ég hefði einfaldega sett mína í krukku og sleppt henni inn til Smára. I'd rather die, ég kem ekki nálægt þessum andskota!!!

Ég gjörsamlega þoli ekki þessi dýr. Mér varð meira að segja flökurt bara við það að finna myndir af þeim fyrir þetta blogg... poj!
Jújú... fólk getur alveg sagt við mig "Hey, þær gera þér ekki neitt...djöfull ertu kreisí!" ÞETTA veit ég alveg... en fær mig engan veginn til að slaka á, ég hata þessar loðnu lufsur! Ég er logandi hrædd við að vera stungin... það er ástæðan!

Ég er samt alvarlega að spá í að setja mynd af þessum kæru vinkonum mínum á desktop-ið á tölvunni minni og sjá hvort ég haldi ekki kúlinu fyrir framan skjáinn án þess að væla, æla eða hlaupa burtu, hristandi hárið á mér til, svo ég sé örugglega ekki með þær í hárinu.

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com