The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


mánudagur, apríl 17, 2006

Blekking!

Tja... það var páskadagur í gær og ég fékk páskaegg frá ömmu. Jú páskaeggið var stórt og fínt og lofaði góðu. Ég ætlaði nú svoleiðis að dúndra á páskaegginu eins og maður gerði í gamla daga til að brjóta það en neinei, það molnaði bara niður... örþunn súkkulaðiskel!
Þegar ég var krakki var varla hægt að brjóta eggin því þau voru svo þykk, maður var kominn með sérstaka aðferð með borðhníf til að ná egginu í sundur... en nú eru þau bara næstum gegnsæ!
Það næsta sem kom mér nú skemmtilega á óvart var hversu mikið af nammi var í egginu. Allt innpakkað og flott og m.a.s. heilt Tromp inni í því! Miklar framfarir þar á ferð verð ég nú að segja! Skemmtilegra en þegar maður var búinn að þjösnast á páskaegginu með borðhníf í heillangan tíma fyrir 2 bingókúlur og eina karamellu!
Samt sem áður var nú eitt sem ég furðaði mig á... það var þetta Smarties sem var í egginu, er ég orðin geðveik eða var Smarties ekki vanalega örlítið stærra en þetta? Hálfgert álfanammi þarna á ferð!

...Ok ég viðurkenni það að það gerist ekki mikið hjá mér þessa dagana, ég sef til þrjú og ég er ekki að læra heldur sit ég við skrifborðið mitt og pæli í innihaldinu á páskaegginu mínu. Júúú... ég er auðvitað búin að djamma af mér rassgatið, 5 kvöld af 7 í síðustu viku var ég mætt á djammið... og ég fór á hestbak í gær...
I have a life!!!


Málshátturinn þetta árið:
"Betra er að játa sannri sök en neita"

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com