The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


mánudagur, apríl 10, 2006

Búin á því

Krökkum fannst herbergið mitt mjög áhugavert í veislunni í gær. Það var farið ofan í allar skúffurnar mínar sem eru alveg heilar tvær... og náð í rakvélarnar mínar, danska fánann minn, stuðkveikjarann minn, fiskamatinn, meiköppið mitt og sólgleraugun og labbað með þetta um húsið! (Eins gott ég faldi vel allt fullorðinsdót öhömm!) Einnig héldu börnin stríð bæði í mínu rúmi, og rúmi mömmu og pabba, sem fólst í því að hoppa í rúmunum, hoppa á þau, hoppa á hvort annað o.s.frv. Ég brá á það ráð að læsa bara herberginu mínu!
Þegar ég kom inn til mín í gærkvöldi til að læra aðeins, þá fann ég hin ýmsu tæki og tól kringum fiskabúrið, eins og blokkflautu, svona járnbrautarteina undir legobíla og fleiri leikföng... sem voru svona í lengra lagi skiljiði? Þá höfðu einhverjir álfarnir verið að reyna að veiða fiskana mína með þessum hlutum. Það útskýrir líka allt súkkulaðikámið á fiskabúrinu og hversu taugatrekktir grey fiskarnir eru í dag!
Veislan var samt æði, það gekk allt eins og í sögu og Lárus var ægilega sætur í teinóttu jakkafötunum sínum, bleiku skyrtunni með bleikröndótta bindið... algjör töffari!

Ég er að fara í síðasta prófið mitt eftir tæpan klukkutíma, held ég nái því ekki... sé fram á þrefalda endurtekt í maí - takk fyrir, amen!

P.s. takk Bára fyrir alla hjálpina í gær, hefði ekki getað þetta án þín!

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com