The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


laugardagur, mars 25, 2006

Ó hve glöð er vor æska...

Já við Jana skelltum okkur með 10 mínútna fyrirvara eða svo í bjórvissuferðina í gær. Við byrjuðum hressilega og sturtuðum í okkur eins og 5 skotum á mann á innan við 15 mínútum og vorum komnar í gírinn áður en fólk náði að blikka auga sko! Eftir að hafa hrist á okkur rassinn í afrískum dönsum ákváðum við að vera dálítið gáfaðar og taka nesti með okkur í kosningapartýið í Egilshöll. Það fór nú ekki verr en svo að 8 bjórar enduðu í Mary Poppins töskunni minni, plús þeir sem við héldum á... Say no more!



Við mættum galvaskar upp í Egilshöll, þar sem Jana tók frá hótelherbergi fyrir tvo á gistiheimilinu ef ske kynni að það myndi fiskast vel um kvöldið á meðan ég ræddi við æsku landsins um skaðsemi áfengis á heilann og mikilvægi þess að fara í háskóla því þar lærir maður á lífið og myndarlega karlmenn... og tók í nokkra karlmenn sem þarna voru staddir til að leggja áherslu á mál mitt! Ein lítil pía þóttist svo kannast við mig, svo ég lét mig hverfa á stundinni. Tja... svona er þetta að hafa starfað í grunnskóla, maður má hvergi haga sér illa á almannafæri, þá eru einhver börn komin og þykjast kannast við mann öss!!! Og bíddu, þarf að koma því að... að það er ekki sniðugt að halda háskólapartý á stað þar sem íþróttaæfingar eru eftir kvöldmat... uss, börnin störðu skelfingu lostin á liðið sem skrölti þarna um peðölvað!

Við Jana eignuðumst nú samt litlar vinkonur sem kunnu "Til hamingju Ísland" frá a-ö og spurðu okkur hvers vegna við værum með bjór í glasi.... ekki var ég svona gáfuð þegar ég var 5 ára. Ég lék mér bara með pónýhesta og drakk kakómalt. Ég ákvað nú að taka mynd af litlu krúttunum en því miður er myndin hrist... Og já, bjáninn ég lét börnin halda á áfenginu á meðan... hvers konar fyrirmynd er ég eiginlega!

Við náðum á endanum að komast upp í kosningapartýið á þriðju hæð eftir að hafa verið meinaður aðgangur að skautasvellinu á annarri hæð... wonder why! En já, partýið var kúl, fyrir utan einhvern slepjulegan mann sem elti mig um allt og vildi ólmur fá símanúmerið mitt því einhverjum fannst sniðugt að segja honum að ég væri "þvílíkt hot fyrir honum" - hver ætli það hafi verið hmmmm ?!?!?!?
Ég uppskar líka góðan marblett á vinstra lærið því mér finnst agalega gaman að detta í stigum, sérstaklega með fullan bjór í hönd þannig að það fari örugglega bjór yfir mig alla líka... I love it

Takk kærlega fyrir skemmtilegt kvöld Jana mín, þetta var alveg magnað!

p.s. ég virðist hafa verið á útopnu í gærkvöldi því ég hringdi víst í Tinnu og bauð henni viðbótarlífeyrissparnað og/eða inngöngu í Krossinn... ho ho ho!

Nuff said...

Ég vil svo í lokin óska Báru minni innilega til hamingju með afmælið í dag... ég vil að allir hugsi vel til hennar, held það sé fátt eins leiðinlegt og að vera veikur á afmælisdaginn sinn!

Innskot fyrir lillebror:
Hann Lárus bróðir átti líka afmæli á laugardaginn... kappinn bara orðinn 14 ára... Klöppum fyrir honum! (",)

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com