The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


mánudagur, febrúar 27, 2006

Ávallt á varðbergi!


Ég hef löngum vitað að ég sé örlítið spes. Ég vakna upp við hin ýmsu hljóð þegar ég er sofandi,t.d. við það ef dælan í fiskabúrinu er ekki að dæla í réttum takti o.fl.... en ég held að ekkert geti toppað það hvernig ég rauk upp fyrir svona korteri síðan.
Ég vaknaði við það að ég heyri vatn dropa á gólfið. Jújú, ekki vanalegt hljóð í herberginu mínu svo ég vakna. Stundum gerist þetta nú að vatn leki á gólfið, en bara úr gluggakistunni ef mikil móða er á glugganum eða raki eða what ever... svo ég teygi mig í handklæði og fer að þreifa á gluggakistunni, en hún virtist vera skraufþurr?! Ég kveiki þá allt í einu á öllum bjöllum og hugsa: "FISKABÚRIÐ!!!" Haldiði ekki að fiskabúrið mitt sé byrjað að leka og allt rennandi blautt í kringum það og nýbyrjað að leka á gólfið!!! Shit, 45 lítrar takk... sá fyrir mér að vakna á eftir og finna fiskislorlykt, stíga á rennandi blautt ónýtt parket og fiskagreyin bara í andarslitrunum á botninum á búrinu... en sem betur fer vaknaði weirdo-inn ég og það stefnir allt í það að ég eyði morgninum í að redda þessu...

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com