The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


sunnudagur, febrúar 12, 2006

Fullt tungl?

Ég fór í sunnudagsbíltúr áðan. Var ekki komin lengra en niður á Fjallkonuveg þegar ég lendi í veseni með sturlaðan bílstjóra.

Ég var á eftir einhverjum jeppa, bara að bíða eftir að komast inn á veginn... nokkrir bílar búnir að keyra framhjá og allt í góðu. Allt í einu kemur einhver snargeðveikur maður þegar ég og gæjinn á undan mér vorum að keyra inn á Fjallkonuveginn, gefur í, situr á flautunni og keyrir næstum utan í mig. Örlítið skelkuð keyrði ég bara áfram og tilbúin að gleyma þessu!
Viti menn... kemur ekki gaurinn og keyrir upp í rassgatið á mér, flautandi og í einhverjum sikk sakk akstri fyrir aftan mig. Ég varð svona örlítið pirruð og ákvað að beygja bara inn einhverja götu í Foldahverfinu til að sjá hvort hann færi ekki bara framhjá mér. NEI því miður! Hann elti mig inn í götuna, keyrði upp við hliðina á mér og sveigði fyrir mig þannig að ég þurfti að nauðhemla svo ég færi ekki inn í hliðina á honum!
Á þessum tímapunkti var hjartað í mér farið að slá hraðar en í hænu þegar tófa kemst í hænsnakofann sko! Það bætti heldur ekki úr skák þegar hann gekk að bílnum og steytti hnefana framan í mig... ég ákvað að teikna skýringamynd af þessu atviki... (og já, það er viljandi gert að setja lítið typpi á gaurinn á myndinni... pottþétt svona snarklikkaður gaur með minnimáttarkennd!)

Ég setti í bakkgír, bakkaði eins og ég ætti lífið að leysa inn í eitthvað útskot og brunaði svo í burtu! Ég titraði af hræðslu og vissi ekki hvað ég ætti að gera, keyrði í hringi í Grafarvoginum og niður í bæ, þorði engan veginn að fara heim til mín af ótta við að gaurinn biði fyrir utan heima hjá mér! Eftir á að hyggja er ég hrikalega fegin að hafa ekki drepið á bílnum eða eitthvað álíka í þessari krísu, ég hefði án gríns hlaupið grenjandi í burtu eins og ég ætti lífið að leysa!


Helgin var annars mjög fín. Það var geggjað að hitta Hrönn og Huldísi í gær og Jet Black Joe klikka aldrei á balli! :)

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com