The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


miðvikudagur, janúar 25, 2006

Kaldhæðni dauðans...

Ég var búin að koma mér mjög þægilega fyrir í sófanum mínum áðan, með kornflex í skál og tölvuna fyrir framan mig, tilbúin að fara að læra. Ákvað samt aðeins að fara á myspace og tjekka á email fyrst meðan ég væri að klára að borða. Haldiði að ég hafi ekki asnast til að opna eitthvað svona týpískt: "You opened it! you're going to have the WORST week of your life next week... unless you repost this within the next 5 minutes!!!"

Um leið og ég var búin að lesa fyrstu línuna í þessu andskotans bréfi missti ég matinn minn á sófann við hliðina á tölvunni. Ég teygði mig í handklæði til að þurrka súrmjólkina af sófanum en í leiðinni hrinti ég hárblásaranum í gólfið sem rakst í lavalampann sem datt næstum í gólfið! Mér brá svo mikið að mér svelgdist svona líka á kornflexinu að ég gat varla andað. Það gerði það að verkum að ég þurfti að svara kjökrandi og hóstandi í símann, sem ákvað að hringja í öllu þessu fáti!

Segið svo að þessi djöfuls keðjubréf hafi engin áhrif... HA?!?!

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com