The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


sunnudagur, janúar 08, 2006

Here I am!!!

Ég fór í bæinn í gær. Ég ætla ekki aftur. Þetta er gömul tugga sem allir segja einhvern tímann og meina hana ekki... en í þetta skiptið meina ég þetta. Ég ætla ekki að láta sjá mig á skemmtistöðum borgarinnar aftur, nema þá ef einhver sem ég þekki á afmæli, þá mæti ég glöðu geði og á Nasa ef einhverjir skemmtilegir tónleikar eða ball er í gangi, that's it. Hér á eftir koma nokkrar ástæður fyrir því af hverju mig langar ekki:


1. Dónaskapur

Ég, Bára og Vigga mættum niður í bæ um 2-leytið. Vorum óvissar um hvert við ættum að fara svo við stefndum bara á Hressó, engin röð og fínheit og bjuggumst við að tölta þar inn án þess að bíða. Nei, heldurðu að dyravörðurinn setji ekki keðjuna fyrir þegar við komum... jú ok, ég skildi það svosem ef það væri fullt inni á staðnum. Heyrðu, svo skoppa þrjár 17 ára smápíkur upp að dyraverðinum, ein segir "ÉG Á AFMÆLI!!!" og þeim er hleypt fram fyrir okkur! Djöfull varð ég reið og móðguð, hreytti einhverju í dyravörðinn, röflaði og blótaði og neitaði að fara inn.

2. Annarra manna heimska

Við Vigga förum á rex seinna um kvöldið, 3-3:30, eftir að hafa verið ósýnilegar í röðinni í smátíma. Þegar Arnar, vinur Viggu, fór að tala tungum og ákvað að yfirgefa pleisið rekumst við á eina kvensu, þrítug var mér sagt nota bene, sem við höfðum hitt í áramótapartý hjá Arnari (long story short: við skiptumst þar á nokkrum orðum, miður fallegum) . Hún var semsagt ennþá svona heimsk og dónaleg og ætlaði að halda bögginu áfram:

Kvensan (með 16 ára gelgjurödd): "Bíddu, hef ég ekki séð þig áður eða?"
Ég:(hlæjandi og brosti út í annað): "Hehe, jújú"
Kvensan(ennþá með gelgjuröddina): "Æ já þú ert þarna fokkgellan!" (það var víst viðurnefni mitt því ég sendi henni fingurinn í áramótapartýinu)
Ég stóð upp og fór eftir að kærastinn hennar(vinur Arnars) rak fingurinn framan í mig. Hann var by the way búinn að sitja þarna hjá okkur lengi áður. Ég nennti ekki að taka þátt í svona vitleysu!

3. Ofdrykkja

Einhver fáviti fer að abbast upp á mig í röðinni fyrir utan Hressó, öskrandi og frussandi á mig... "Ertu til í kjeeeelllinn?!? ...ertu til í hann... ehh!?!" - Ég lít á hann, Jane Bond style og segi "Passaðu þig... ég er hættuleg" - eitthvað gerðist þannig að hann fer svo að öskra á Viggu: "Láttu vin minn vera... FUCKING LÁTT'ANN VERA!!!" - Þessi vinur hans átti í fullu fangi með að afsaka þennan gaur og reyna að halda honum í skefjum... Fáviti

4. Fávitaskapur fólks á skemmtistöðum

Við sátum í makindum okkar um 5:30 inni á Hressó að tala við Einar Óla og vinkonur hans, voða fjör... heyrðu, kemur ekki fljúgandi glas og mölbrotnar á borðinu hjá okkur! Sem betur fer snéri ég nú að Einari at the time, annars myndi ég varla vera með fulla sjón í dag sökum glerbrota út um ALLT!!! DJÖFULS HELVÍTIS ANDSKOTANS FÍFL!!!

5. Slagsmál, stælar og fleira í þeim dúr

Við vorum að rölta út af Hressó um 6-leytið og hvað haldiði... það liggur maður í götunni fyrir utan, bíll við manninn og löggan mætt á staðinn. Ég veit ekki hvað gekk þarna á, hvort einhver hafi keyrt á greyið manninn eða einfaldlega lamið hann í götuna... en þetta fyllti mælinn, þarna ákvað ég að það væri komið nóg... DJÖFULL!!!

6. Helvítis leigubílaröðin

a) Eitthvað andskotans fífl sem situr um Viggu á djamminu fór að abbast upp á hana í leigubílaröðinni, ég ýtti honum burt og hreytti einhverju í hann og mér heyrðist hann ætla að hrækja í hárið á mér, en sem betur fer gerði hann það ekki (þarna var farið að krauma í mér).

b) Nýbúin að sjá að fínu kúrekastígvélin mín voru öll útötuð í ógeði. Sá mann standa fremst í röðinni, sem heitir Valdi og var fótboltaþjálfari í Borgarnesi. Hélt hann væri ágætis maður en nei, ekki lengur. Hann var að perrast í stelpunum fremst í röðinni og var með vitleysu og rugl í fólki. Þegar ég kom fremst var hann eitthvað að rugla í okkur og ég segi "Takk Valdi minn, hafðu það gott!" - Hann steinþagði, og ég vona að honum hafi brugðið að einhver þekkti hann þarna.

7. Óþefur, allt skítugt og ógeðslegt.

Komin heim kl. 7:03. Rasandi yfir óþef af fötunum mínum og hárinu. Rauk í sturtu og ákvað að þetta myndi ég ekki gera aftur. Taskan mín lyktar ennþá og stígvélin mín eru hryllingur.

Þetta er algjör synd, því margir af þessum skemmtistöðum/kaffihúsum&veitingahúsum niðri í bæ eru ofsalega kósý og fallegir á virkum dögum og vel staðið að þeim. Svo umbreytist allt um helgar þegar her af snaróðum og sótölvuðum mannöpum hertekur bæinn!

Ég meika þetta ekki takk fyrir...


Þrátt fyrir neikvæðni og pirring hérna í færslunni(sem er nú með þeim lengri sem ég hef sett hér inn) þá er ég rosalega kát og hress, og sé fram á að þetta ár muni vera svakalega gott! Margt skemmtilegt á döfinni, og ég hef margt á prjónunum fyrir árið!

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com