The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


þriðjudagur, janúar 17, 2006

Halló Akureyri!

Jæja, ég er komin með armband í Akureyrarferðina. Brottför kl. 10:45 á föstudagsmorgun - farin að hlakka vel til! Planið var að keyra, en eftir að hafa skoðað ástandið á bílamálum, færð, peningamálum og fleiru þá ákváðum við frekar að fara í rútuna, enda líka mjög líklega meira fjör þar á leiðinni! Við verðum svo í town center í magnaðri íbúð, sem er æði... hefði aldrei meikað að liggja á einhverju íþróttahúsgólfi eins og boðið var upp á! Ef þið verðið stödd á norðurlandinu um helgina, endilega bjallið í mig!!!

Það er annars svo drullukalt núna að eðalvagninn minn neitar að opna fyrir mér dyrnar. Til þess að komast inn í hann, reynir maður að taka úr lás, skríða svo inn aftur í, starta bílnum... og ef hann er í góðu skapi þá kannski er hægt að opna bílstjórahurðina eftir að maður er búinn að skafa... ef ekki, þá smokrar maður sér inn aftur í og klöngrast fram í, með hinum ýmsu hundakúnstum - mjög þægilegt og kvenlegt þegar maður er í pilsi til dæmis - mhm... you know it! Og nota bene, það er heldur ekkert alltaf hægt að opna farþegahurðina fram í, þannig að það er svona nettur taxafílingur þegar fólk kemur í bíl með mér hehe!

Annars er stefnan að byrja aftur á fullu í spriklinu á morgun, búin að vera í of langri pásu... nenni ekki þessum feitabollustælum lengur!

Nuff said...

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com