The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


föstudagur, nóvember 11, 2005

"Því ég er kona..."

...voru einmitt upphafsorð ritgerðarinnar um Body Shop sem ég skilaði kl. 23:54 í gærkvöldi, 5 mínútum áður en fresturinn rann út... jújú, ég veit að ég rétt slapp en málið er það að kvöldið áður, klukkan nákvæmlega 22:32, hvarf ritgerðin mín úr tölvunni þegar ég var eitthvað að fikta í forsíðunni... ég stóð uppi með voða fína forsíðu og svo heimildaskrá! Ég vissi ekki hvort ég ætti að gráta eða hlæja... eða lemja einhvern frekar fast því þetta eru djöfuls 25% af lokaeinkunn í Stjórnun!!!

... Ég svaf svo út í dag... las Moggann í rólegheitum og fann þar stjörnuspána mína sem var svohljóðandi:

TVÍBURAR 21. maí - 20. júní
Í þínum villtustu draumum hefur þú yfir að ráða aðstoðarmanni, kokki, bílstjóra og einhverjum sem passar á þér lappirnar. Í raunveruleikanum gengur þér bara vel að annast sjálfan þig. Hrósaðu sjálfum þér og verðlaunaðu með fótsnyrtingu.
Já, ætti ég það ekki bara alveg skilið?!?

... í leiðinni óska ég henni Tinnu til hamingju með tvítugsafmælið... sem er í DAG! Og takk æðislega fyrir alla hjálpina í gær, hefði ekki getað klárað þetta án þinnar hjálpar!!!

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com