The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


þriðjudagur, nóvember 15, 2005

Sko...

Þegar ég fór út í morgun var nístingskuldi. Eiginlega það kalt að mig langaði eiginlega ekkert út. Ég gekk rösklega að litlu gráu skutlunni og setti lyklana í skrána... en ekkert gerðist! Jú, þetta kemur nú stundum fyrir ... en já, þetta var öðruvísi, því farþegahurðin opnaðist ekki heldur. Hins vegar fóru báðar afturdyrnar úr lás. Ég fór þangað inn og sat aftur í meðan nágrannakonan keyrði fram hjá mér, bara til að fullvissa hana um það að ég væri snarklikkuð... you're never too sure!!! Svo skutlaði ég mér fram í eins og ég hefði gert þetta hundrað sinnum, og sá þá að Einar Már nágranni sat við eldhúsborðið út við glugga og starði á mig... já veistu, ég held ég sé alveg búin að fullvissa hann um að ég sé rugluð, eftir að hann sá mig sniglast hérna úti eitt þriðjudagskvöldið í náttslopp að ná í bjór í skottið á bílnum mínum svo hann frysi ekki í hel... Hann semsagt var að fara út í bíl, og setti háu ljósin á mig til að sjá hvað væri í gangi þarna í bílnum mínum... og þá stóð ég þarna, á inniskóm og í náttslopp... að ná í bjór... á þriðjudagskvöldi...

ALLAVEGA - þá brunaði ég yfir í Kópavog til að ná í Tinnu. Þegar þangað kom, þá komst ég ekki út úr bílnum, planið mitt hafði semsagt ekki virkað. Ég ætlaði semsagt að keyra bílinn þangað til hann hitnaði það mikið að dyrnar þiðnuðu. Neinei... ég sat þarna í smástund, og ákvað svo að láta reyna á það að smjúga út um rúðuna bílstjóramegin... ég var búin að keyra upp svo mikið egóbúst þegar ég liðaðist um bílinn eins og slanga þarna fyrr um morguninn án þess að slasa mig... en já, það virkaði ekki, festist næstum með aðra löppina út um gluggann og hina undir stýrinu! Þetta reddaðist nú á endanum eftir að ég skutlaðist bara út aftur í, og lét bílinn vera í gangi í smátíma til að geta opnað hurðina...

... en ég ætla nú ekki að hafa þessa sögu lengri, hún hefur ekkert svona punchline eða neitt, mér fannst þessi dagur bara byrja frekar skemmtilega svona fimleikalega séð...

p.s. ég er hætt að segja "hundpirruð" og "hundleiðinleg" - því mér hefur aldrei fundist hundar neitt afskaplega leiðinlegir og pirraðir, þess í stað segi ég "kattpirruð" og "kattleiðinleg" - því þau dýr virka alltaf pirruð og leiðinleg!

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com