The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


mánudagur, nóvember 28, 2005

:: ERTU AÐ HLÆJA AÐ MÉR!?! ::

Já, fyrsta prófið er búið... rekstrarhagfræðin - gúddsjitt, gekk bara svona glimrandi vel! Skítt með golden einkunnina sem ég fékk á miðannarprófinu = 4.2 hahaha!

Við Tinna erum á lífi...vorum svona að spá í að halda upp á jólin hérna í matsalnum... algjörlega til þess að fá ekki fráhvarfseinkenni, enda erum við hérna 24/7 sem sannaðist algjörlega um helgina. Við vorum semsagt að læra til kl. 5 á sunnudagsmorgun og komum svo aftur hingað kl. 10:30 - stólarnir kólnuðu varla...

Við lestur fyrir þessi blessuðu próf verður andrúmsloftið oft magnþrungið. Það var hér einn daginn er við sátum inni í horninu okkar að Tinnu liggur mikið niðri fyrir út af einhverri útskýringu á einhverju merkilegu í einhverju fagi... og segir: "Sko, hlustaðu... bla bla bla" - og ég halla mér svona fram og stari aftan á tölvuna hennar, all ears...
... þá hváir Tinna allt í einu (frekar hátt ef mig minnir rétt): "ERTU AÐ HLÆJA AÐ MÉR?!?" - Mér krossbrá svo svakalega að ég starði bara á hana með þvílíkum undrunarsvip... skildi ekki baun í rassi! Allavega var þetta voðalega fyndið at the time, og þessi lína er mikið notuð hérna í lestrinum ef við skiljum ekki hvor aðra...

Annars erum við búnar að þróa með okkur sérstakan einkahúmor... Þetta tengist þetta vissri teiknimyndaseríu, Aqua Teen Hunger Force, sem skrýtni internetmaðurinn sendi mér... og þyljum við Tinna upp atriði eftir atriði hérna og hlæjum aftur og aftur að sömu frösunum. Held að við séum álitnar örlítið skrýtnar... nú ef svo er, þá hlýtur fólk ekki að kippa sér mikið upp við það ef við mætum á próflokadjammið með jólahúfur og í snípsíðu santa outfitti... er það?

Svo er planið að skella sér upp á Arnarhól kl. 12:15, þann 12.desember og verða sauðdrukknar - hver sem vill joina partýið, endilega hóið í mig eða Tinnu! - Við erum svona skrýtnar stelpur með fullt fangið af töskum, í lopapeysum, Converse skóm og tölum ensku með þýskum hreim...

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com