The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


laugardagur, október 01, 2005

Tækjadaman...

Jæja, það er komið að því... Fröken Rósa er komin með webcam!!! Er alveg að missa mig yfir þessu nýjasta tæki í minni eigu... geðveikt svöl og nett vél sem ég smelli bara si svona á skjáinn á tölvunni minni... like that!

Mér brá nú aðeins þarna í gær þegar ég opnaði pakkninguna utan af henni og fann leiðarvísinn... hann var svona 300 síður, shit! Ég settist niður, dró djúpt andann og fletti á blaðsíðu 1... og svo 2... og svo 3... og á blaðsíðu sjö þá allt í einu byrjaði bókin bara á einhverju allt öðru tungumáli! Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið!?! En svo þegar ég lagaði hárið eftir þetta fjaðrafok og lagði mig fram við að nota þessa gífurlegu kunnáttu mína í ungversku, þá uppgötvaði ég semsagt að bókin hafði bara byrjað upp á nýtt þarna á blaðsíðu sjö en á fyrrgreindu tungumáli...
Ég held að ef ég tæki mér tíma og læsi þennan leiðarvísi nokkrum sinnum yfir, þá gæti ég slegið ca. 12 flugur í sama höfuðið og lært jafnmörg tungumál á einu bretti! Ég gæti nú hins vegar einungis sagt "Smellið myndavélinni í samband" og "Put the CD in the disc drive" og eitthvað álíka, en er það svo slæmt, ég bara spyr?!?

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com