The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


laugardagur, september 10, 2005

Skítur á priki!

Siglingin var ekki að gera sig í gær, fór samt á djammið seinna um kvöldið!

Stóð allt í einu við hliðina á Björk Guðmunds fyrir utan Prikið... ég gleymi alltaf hvað hún er lítil... notar samt ágætis ilmvatn...

...annars komst ég að því í gær að karlmenn á djamminu í Reykjavík eru fífl, veit ekki hvort ég ætti að gefa dæmi... en jæja ok, þessa menn hitti ég t.d.:

Maður 1: - Henti jakkanum sínum yfir hausinn á mér, hélt greinilega að ég væri hattastandur, sem varð til þess að ég brenndi mig á sígarettu og datt næstum því á borðið við hliðina á mér og hefði þá hellt niður bjórnum mínum... en ég er að reyna að fyrirgefa honum þetta, því þetta er bróðir hennar Herdísar og hann er með mér í skóla... hehe

Maður 2: - "Já, þú ert sæt, þrátt fyrir kílóin... en þú veist náttúrulega hvað þú átt að gera í því - hérna, vinkonur þínar, eru þær á lausu?"

Maður 3: - Sest við hliðina á mér, horfir á mig, gefur mér einhvern viðbjóðs svip, horfir á manneskjuna við hliðina á mér og býður henni í glas, sussar svo á mig þegar ég ætla að tala...

Maður 4: - "Þú getur líka gist heima hjá mér..."
(Nota bene... þetta sagði leigubílstjórinn á leiðinni heim til Viggu... Bára mín, þú rétt slappst áður en pervertinn gaus upp í þessum gæja)

Nuff said...

Held að það sé eitthvað ósýnilegt skilti á enninu á mér sem á stendur "Please treat me like shit..."

Jebb, svona eru kvöldin í bænum, party on!

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com