The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


mánudagur, september 19, 2005

Mæða/móða/má þa'?

Fólk segir að mánudagar séu langir og leiðinlegir en ég held að sunnudagar séu verri - þá ertu bara að bíða allan daginn eftir því að fara að sofa því það er mánudagur daginn eftir. Þú leggst í rauninni í dvala á sunnudögum, nema duglega fólkið sem fer að taka til! (nota bene, oft er fólk líka í þynnku eða einhverju álíka ástandi... nema ég því ég djamma helst ekki á laugardögum hehe!)

Þú opnar augun á mánudagsmorgnum, jei... maður vaknar þreyttur og önugur eftir að hafa snúið sólarhringnum við yfir helgina en oftast eru mánudagar ekki svo slæmir - maður slappar bara af eftir vinnu/skóla því jú, maður sér fyrir sér að hafa nægan tíma til að læra og gera allt seinna í vikunni. Þetta týpíska íslenska viðmót - "Þetta reddast jájá..." p.s. er/var ekki Lost líka sýnt á mánudögum?

Þriðjudagurinn er næstur í röðinni, hann líður oftast voða hratt...

Á miðvikudögum fer fólk oft að skipuleggja helgina... því föstudagur er bara "ekki á morgun heldur hinn"

Fimmtudagurinn fer í heimalærdóm í 5.gír... sumir skreppa í bjórinn, jújú - en hinir sitja sveittir við heimadæmi í stærðfræði o.fl.

Jæja, þá er strax kominn föstudagur og hvað þá?!? JÚ, það er komin helgi aftur!!! - svo ég held að ég hafi rétt fyrir mér!!!

...um hvað ætlaði ég aftur að tala, andskotinn !?!

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com