The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


þriðjudagur, september 27, 2005

Ég er pirruð...

Ég er með dauðans vírus/orm í tölvunni... sem er að gera mér lífið leitt! Ég er búin að eyða út núna svona 7-8þúsund .zip fælum sem hann lætur poppa upp í tölvunni hjá mér... með alls kyns skemmtilegum nöfnum, bæði ósiðlegum og siðlegum, nöfnum á gömlum bíómyndum o.fl. o.fl.! Hann heitir Ugly, enda er hann ljótur og ömurlegur! Ég vil líka benda fólki á að opna ekki email frá mér svona í augnablikinu... ég er að vinna í að losa mig við þennan djöfulsins orm, annars fer ég upp á 5.hæð eftir smástund og öskra á tölvugaurinn ef hann getur ekki lagað þetta fyrir mig...


Ég á eftir að læra helling fyrir markaðsfræðiprófið á fimmtudaginn og það stefnir í að stærðfræðiskiladæmin eigi eftir að eiga hug minn allan á fimmtudaginn eftir prófið... Nei bíddu, svo eru fleiri skilaverkefni í næstu viku og stærðfræðipróf er það ekki ? Yndislegt...

Þetta er ekki allt, nei nei nei...

Skólinn minn er uppfullur af skrýtnu fólki, þar á meðal er manneskja sem glápir alltaf á mig ef hún sér mig... ok, við erum að tala um að stara, ekkert að kíkja svona eins og ég geri... ef ég er að ímynda mér þetta, þá er ég snarbiluð og ég get svarið það, ég geng í lið við Votta Jehóva!

...svo er ég líka að byrja á túr

Það er bara allt ómögulegt í dag, nema hárið...

Pant fá uppbyggileg comment, takk...

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com