The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


mánudagur, ágúst 29, 2005

Þyrnar og rósir

Sælt veri fólkið,

helgin var góð að vanda, vísindaferðin og partýið var alveg að standa undir sínu á föstudaginn, og svo skruppum við Bára og Herdís og nokkrar vinkonur hennar í bæinn á lördag. Ég varð nú viðskila við þær er ég hitti Elísabet frænku og satmeð henni og vinkonu hennar heillengi á Hressó! (dansaði og söng ...passaði mig nú samt því spákonan á Menningarnótt sagði mér að forðast kjánalæti hahaha!)

Ég hitti helling af fólki sem ég hef ekki hitt í háa herrans tíð... og finnst það æði og bið að heilsa ykkur öllum!!! ...Svo lendi ég alltaf í einhverju stórfurðulegu fólki, m.a.s. manni sem reyndi að telja mér trú um það að hann væri kona... og skeggið væri ekki skegg heldur bara hár sem hann losnaði ekki við úr andlitinu... eitthvað ræddum við líka um bakvísandi hár... en það er önnur saga!

Þegar dagur reis stóðum við Bára í leigubílaröðinni með ekki svo álitlegum karlmönnum og okkur var nú eiginlega hætt að litast á blikuna ... kemur ekki riddarinn á hvíta hestinum og bjargar okkur yngismeyjunum úr lífsháskanum - reyndar bara hann Jón Egill gamli vinur og félagi á bílnum sínum, en hva... þetta var alveg eins og í bíómynd!!!

Málið með titil þessa bloggs er ekkert flókið - ég sit bara inni hjá Smára bró og datt enginn titill í hug... svo rak ég augun í bók hérna við hliðina á tölvunni sem heitir einmitt "ÞYRNAR OG RÓSIR" og las ég hana í MH forðum daga... Mér sýndist nú vera maður á hvítum hesti framan á og fannst alveg tilvalið að nota þetta! ...en þegar ég skoða betur þá er þetta undarlegur maður að spila á flautu með krosslagðar lappirnar og í skikkju... eða eitthvað - ALLAVEGA!!!

Ég bið að heilsa í bili, þarf að mæta í markaðsfræði!!!

p.s. ég gæti nú tengt titilinn við einhverja atburði helgarinnar, en það er of flókið og ég hef svo nauman tíma!

mbk,

Súld

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com