The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


þriðjudagur, ágúst 23, 2005

"Syng hinn eina sama tóóóóón..."

Jæja - dagur tvö í skólanum búinn... líst bara helvíti vel á þetta! Hef lítið að segja um það í bili!

Ég ákvað á síðustu stundu að skella mér í útilegu Stúdentafélagsins í Þrastaskógi á síðasta föstudag og kippti Sigga með mér í leiðinni. Sjáum ekki eftir því - en því miður var myndavélin ekki með í för, en samt ... hún hefði bara verið inni í bíl, það var beljandi rigning allan tímann! Nokkrir góðar punktar sem lýsa þessari eiturhressu ferð:

- Bjór

- "Hey, varstu búinn að fá þér svona band?"

- ...bjór

- Grilltangir

- Þurrís

- ...bjór

- Siggi trúnó

- Frisbee

- Eyjólfur Kristjánsson

- Tjald

- ...bjór

- Fleiri tjöld

- Egils Kristall

- ...rigning - sem Siggi tók reyndar ekki eftir fyrr en rétt áður en við fórum haha

... og já - ég var edrú og keyrandi !


Menningarnótt fór vel fram! Ég kíkti niður í bæ með Eyrúnu á laugardaginn... biðum reyndar fyrst eftir spákonu í 40 mín eða meira uppi á Þjóðarbókhlöðu... og það eina sem þessi kvefaða spákona sagði mér var að ég væri skemmtileg og það væri margt nýtt framundan hjá mér og ég mætti ekki vera með mikil kjánalæti haha... æ nei!!!
Við röltum svo yfir á Þjóðminjasafnið, ég hef ekki komið þangað síðan sautjánhundruðogsjö þegar ég fór með pabba að kíkja á jólasveinana... og sór að koma aldrei inn í þetta hús aftur - allt of scary karlar!
Anyways... við ætluðum svo að fara á draugadótaríið þarna í TM húsinu en snarhættum við þegar röðin fór að nálgast Tjörnina!!!

Ég fór svo um kvöldið með hanakamb og læti, og steig út úr bílnum hjá mömmu þegar rigningin byrjaði, og komst niður að Café Paris þegar hún hætti - great! Eeen... Rósa Gréta hugsaði fram í tímann, og mætti í regnjakka með hettu aha... svo dúið hélt sér algjörlega, enda weatherproof með meiru!!!

Ég, Bára, Jóhanna og Fanney fórum á Sálarball á Nasa og var það helvíti gaman - Sammi og Kjartan í Jagúar komu og spiluðu með þeim og toppaði það alveg ballið! - Reyndar var voða troðið á þessu balli en það stoppaði okkur ekki, við tjúttuðum fram undir morgunn! Ég lenti næstum því í slag, var lamin bæði í brjóst og andlit og trampað á tánum á mér eins og fólk fengi borgað fyrir það... en samt - über gaman!

Ég rakst svo á margt spennandi og skemmtilegt fólk á leiðinni heim og þar má nefna hana Sæju vinkonu, sem ég virðist hitta á alls staðar á landinu, án þess að vita af henni... orðið frekar spooky ;)

En jæja, ég er með kvef, hausverk og túrverki og held ég meiki varla að sitja hérna lengur... ætla að leggjast upp í sófa og horfa á Beetlejuice... eða jafnvel finna einhver ráð við gulum tönnum ...hætt að drekka kaffi!

Nuff said...

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com