The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


fimmtudagur, ágúst 18, 2005

Geta draumar ræst?

Ég hef nú aldrei gerst svo fræg að verða fræg en í fyrrinótt varð ég það nokkurn veginn. Ég tók þátt í Eurovision fyrir Íslands hönd. Ég var klædd í fallegan rauðan kjól, var með hanakamb og með hina landsþekktu hljómsveit Skítamóral mér til aðstoðar. Ég var æðisleg. Baksviðs stóðu svo Vigga og Bára og hvöttu mig til dáða. Ég söng því miður ekkert stórkostlegt lag en við ætluðum sko sannarlega að vinna þessa keppni og við trúðum því af öllu hjarta að það myndi gerast!

Því miður gerðist þetta ekki í raun og veru, heldur í draumheimum hennar Viggu...


Mig langaði nú alltaf í svona rauðan kjól, eins og Sigga Beinteins var í þegar hún söng "Eitt Lag Enn" - ég held ég hafi m.a.s. óskað mér að fá svona jólakjól eitt árið... og ég fékk rauðan kjól, þó ekki svona púff púff kjól eins og Sigga var í en rauður var hann og ótrúlega flottur, enda saumaði amma mín hann!


Mig dreymir ennþá um að eignast rauðan síðkjól, helst einhvern dálítið ævintýralegan... Þá kemur strax upp í hugann kjóllinn sem Arwen í LOTR var í... og margir kjólar sem álfar eru í, í bíómyndum... en bíómyndir eru bara bíómyndir.
Ég held að fólk myndi nú reka upp stór augu ef ég myndi mæta með mittissítt hár og í blóðrauðum síðkjól í skólann... þyljandi kannski einhverjar galdraþulur, hver veit ? Kannski myndi fólk vilja brenna mig á báli en þá myndi riddarinn á hvíta hestinum bjarga mér og þeysa með mig í kastalann sinn ...

...jæja, ég ætla að ná mér niður á jörðina og fara að vinna!!!

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com