The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


mánudagur, ágúst 15, 2005

"Þetta er ugla!!!"

Jahá - helgin var erilsöm að vanda, ...það er aldrei flóafriður í kringum mig!

Föstudagurinn fór í húllumhæ með hinum sumarstarfsmönnunum hérna hjá VÍS sem að mínu mati tókst með eindæmum vel... það var grillað, sungið, spjallað og ruglað eins og fólk átti lífið að leysa! - Seinna um kvöldið hittum við Bára Binnu í bænum og skemmtum okkur konunglega þangað til dagur reis...

Laugardagurinn var tekinn seint... eftir að við Bára uppgötvuðum að við höfðum boðið tveimur drengjum frá Ohio kvöldið áður, með okkur í roadtrip kl. 14:00 - jæja! Við beiluðum nú á þeim en ákváðum nú seint og síðar meir að skella okkur í smá túristaferð austur á bóginn - og enduðum í Vík í Mýrdal eftir að hafa bleytt okkur ærlega við Seljalandsfoss og Skógarfoss. Svo læddumst við eftir holóttum malarvegi í skjóli næturs upp að Dyrhólaey, sem við sáum svo rétt svo, greinilega háflóð eða eitthvað þannig að það glitti bara rétt svo í gatið á eynni! - Sjórinn var flottur, og öldugangurinn gífurlegur... og ég get svarið það að sjórinn var að reyna að teygja sig í okkur! Heyrðu, svo var það eitt... á leiðinni frá eynni, eftir dyntótta og holótta veginum, sáum við uglu!!! - Og náðum mynd af henni... en því miður, eins og margar myndir frá þessari ferð, þá er hún hrist... en ÞETTA VAR UGLA!!!

Ég ætla að láta fylgja með 2 myndbönd sem við tókum af Seljalandsfossi, sýnir svona aðeins kraftinn sem var í honum!





Á sunnudeginum fór ég svo í hestaferð um Njáluslóðir með Ransý. Ég varð reyndar holdvot vegna rigningarinnar en mér var boðin vinna og ég fékk hrós fyrir hæfni mína - ásamt því að fá magnaðan grillmat - svo þetta var nú allt gott og blessað! Eftir ferðina og matinn var fjölmennt í sögusetrið á Hvolsvelli þar sem Guðni Ágústsson hélt fyrirlestur um Njálu... en því miður dottaði ég í honum miðjum, svo ég missti af örlitlu... *hóst*



Ég verð nú að segja að næst þegar myndavélin mín verður í för, þá tek ég þessa "date/time" stillingu AF því þetta eyðileggur allar náttúrulífsmyndir!

Jæja, nóg í bili

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com