The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


miðvikudagur, júlí 13, 2005

Long pretty lashes...

Það vita það nokkrir í kringum mig að ég er með fullkomnunaráráttu gagnvart augnhárunum mínum. Stundum eyði ég þvílíkum tíma í að mála annað augað aftur og aftur, oftast það hægra... því ég hef tekið eftir því að mér tekst ekki að gera það eins vel og það vinstra... ekki nema ég byrji að mála mig hægra megin og færi mig svo yfir á það vinstra! - Einnig hef ég tekið eftir því að hægri augnabrúnin mín er betur plokkuð en sú vinstri og jafnvel eilítið þykkari -

Ég veit... ég er spes!

En burtséð frá því þá keypti ég mér nýjan maskara í gær... frá Clinique og ég held að þetta sé besti maskari sem ég hef keypt um ævina... svei mér þá! Mér fannst lýsingin á honum líka svo ægilega skemmtileg:


"Lash Look - Long/Feathery"


Svo auðvitað varð ég að kaupa hann... því hver vill ekki vera með löng augnhár eins og fjaðrir?

Svo ég tali nú ennþá meira um meiköpp... þá mála ég mig nú ekki það oft, jújú stundum svona þegar mig langar að gera mig ennþá sætari... en já - ég er kona sem get farið út úr húsi ómáluð... - já ég veit, þetta eru forréttindi! Sumar okkar kvennana geta ekki einu sinni farið út með ruslið án þess að vera með kinnalit... öss!!! Ég bara nenni ekki að lenda í því að kannski í steikjandi hita eða eitthvað að meiköppið bráááðni bara af mér, ha?!

Nuff said...

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com