The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


þriðjudagur, júlí 26, 2005

Hey kanína...

Föstudagur - 22.júlí

Ég, Bára, Eva María & Sólrún lögðum upp í reisu um helgina, fórum þó á tveimur bílum vegna mikilvægis okkar Báru fyrir skemmtanalífið í Reykjavík á laugardeginum.

Við komu í Grundarfjörð hittum við á mann á annan, og annan og annan... og þekktum þá alla! - Sem var frekar spes því Bára var nú að koma í Grundarfjörð í fyrsta skipti!

Nú, við tók tjalduppskipun við hús eitt með svörtu þaki í gula hverfinu kennt við Jobbana og tókst það með eindæmum vel. Setið var þar og sötrað fram eftir kveldi og farið síðan með limmunni niður að félagsheimilinu þar sem Sálin spilaði. Vegna mikilvægis okkar fórum við í sérstaka V.I.P. röð og fengum forgang inn á ballið og stjórnaði Eva María þeirri forgangsröðun eins og herforingi.


Ballið var nú frekar sveitt og skiptist fólk á alls konar líkamsvessum inni á ballinu og utan þess! Við huggulegu dömurnar skemmtum okkur konunglega þrátt fyrir teygð föt, hártoganir og bjórsull af völdum... allra!

Eftir að ballinu lauk sömdum við Bára stöku, eins og okkur einum er lagið, sendum hana út í veður og vind og þutum svo yfir á Bar 59 til að ná eins og einum bjór og pizzu í eftirmat... sem var eins sveitt og ballið en dúndurgóð og lygndu allir aftur augunum við átið...

Þegar sólin fór að rísa, uppgötvaði ég þá mér til mikillar undrunar að ég var sú eina uppistandandi af ferðalöngunum en ákvað samt sem áður að skipuleggja tjaldstæðispartý! - Það fór nú ekki betur en svo að það vantaði meðleigjandann í mínu tjaldi og hitt tjaldið hristist af hrotum... svo ég settist bara inn í eldhús með Úlrik þangað til allt öl var uppurið!

Laugardagur - 23.júlí

Eftir að hafa skeggrætt við drengina í Úlrik um blauta drauma og allt þar fram eftir götunum, brunuðum við Bára í borgina. Stoppuðum í Borgarnesi og fengum okkur aðra sveitta pizzu en sú jafnaðist nú ekki á við Jobbapizzuna!

Smári bróðir átti afmæli á laugardaginn og var okkur boðið þangað of course... Við Bára fórum í ægilega skemmtilegan orðaleik, en sá vakti ekki mikla lukku hjá öðrum gestum í teitinu... en örugglega hjá nágrönnunum! haha...

Eftir að hafa setið og sötrað bjór úti á palli, skutlaði mamma okkur gestunum í eldri kantinum niður í miðbæ og stefnan tekin á Hressingarskálann þar sem við hittum Viggu, Arnar, Brynju og annan gaur... og svo Gumma Viðar, sem og aðra hressa herramenn og huggulegar dömur. Dönsuðum við fagra dansa, stigum á tær, athuguðum hvort gólfið væri ekki örugglega í lagi og heilsuðum upp á Inga pinga palavú palavú palavú!

Eftir fagra dansa og skemmtilegar uppákomur tókum við "systurnar" straujið heim í Grafarvoginn þar sem við rannsökuðum baðherbergisflísarnar gaumgæfilega og athuguðum hvort litli bróðir væri ekki örugglega sofandi... horfðum svo á Shrek 2 þar til við lognuðumst út af, sælar og glaðar eftir góða og hressa helgi!

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com