The Ultimate Rock Puffin
- \\ The Ultimate Rock Puffin // -
Shizzle...


Í spilaranum...

One liners

Þú ert gestur númer


Nokkrar vel valdar


Gísli, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Tinna & Jana, vísó hjá Sjálfstæðisflokknum 12/05 '06


Ég & Tinna, próflokadjamm 1.árs VD 10/04 '06

(Klikkið á myndirnar til að sjá þær í réttri stærð)


Gamalt


"Nah! Just smile and wave, boys. Smile and wave " - Skipper the Penguin: Madagascar


föstudagur, júlí 15, 2005

Fulltíða kvenskörungur...

Af hverju ? - jú sko...

Þetta byrjaði allt fyrir u.þ.b. viku síðan þegar ég fór á kaffihús, nánar tiltekið Hressó, með Báru minni. Hún pantaði sér te en ég sódavatn með lime, eins og ég fæ mér nú oftast. Nema hvað, ég smakka teið og finnst það bara ekki slæmt... sem er mjög skrýtið því oftast foja ég og poja við svona löguðu! Nokkrum dögum seinna er ég stödd á Hressó aftur með Kötu og ákveð að fá mér þetta te... og svo aftur daginn eftir og svo aftur og aftur... jæja, en þetta var bara skref 1...

Skref 2:

Ég vaknaði örlítið seint í morgun, og kom því alveg á mínútunni í vinnuna sem er nú ekki óvanalegt, sé enga ástæðu fyrir því að mæta of snemma í vinnuna... NEMA HVAÐ, nú sat ég hérna fyrir ca. 20 mín og var farin að geispa, svo ég hugsaði "hættu nú alveg... nú verð ég að standa upp!" - og geng fram á kaffistofu til að heilsa upp á liðið... og hvað svo?! Mín nær sér í kaffibolla og fær sér kaffi
reyndar eitthvað espressosúkkulaði en það er 40-50% kaffi!!!)
- og sit núna og sötra á þessum ósköpum og líkar ekki illa...


Niðurstaða:

Uppáhaldste: Jarðarberja&kiwi teið á Hressó

Uppáhaldskaffi: Espressosúkkulaði

(reyndar eina kaffið sem ég drekk og eina teið sem ég drekk en það er aukaatriði)


Ég er að verða fullorðins...

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com